Viðburðir
Kraftar segulsviðsins
Sýningin Margpóla með verkum Önnu Rúnar Tryggvadóttur verður skoðuð þar sem segulsvið jarðarinnar og kraftar þess verða uppspretta listsköpunar þar sem frumlegar aðferðir koma við sögu.
Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt.
Merki krakkaklúbbsins er fengið út barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann.
Ókeypis fyrir alla fjölskylduna.
lau
4. maí
14.00—16:00
Við sjáum óvænt abstrakt
Leiðsögn sýningarstjóra
Á sýningunni er þremur hópum listamanna sem koma úr ólíkum áttum teflt saman, þar sem finna má samhljóm þeirra á milli. Listamenn sem komu fram á miðri 20. öld og unnu með hugmyndafræði abstrakt myndlistar, fatlaðir listamenn sem vinna óheft á flötinn í samtali við upplifun sína af heiminum og fleiri samtímalistamenn sem hlotið hafa formlega menntun í myndlist og vinna meðal annars með abstrakt myndverk.
Sýningarstjóri: Kristinn G. Harðarson
sun
5. maí
14:00—15:00
Blátt lítið blóm eitt er
Verk Eggerts Péturssonar veita innblástur fyrir skemmtilega teiknismiðju. Listasmiðjan mun eiga sér stað inni í sýningarrými Safnahússins þar sem unnið verður með listaverkin okkar.
Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt.
Ókeypis fyrir alla fjölskylduna.
lau
11. maí
14:00—16:00
Margpóla
Anna Rún Tryggvadóttir beinir sjónum að miklum en ósýnilegum kröftum jarðsegulmagnsins og hinu síflakkandi segulnorðri. Verkin á sýningunni eru hluti af stærri, yfirstandandi rannsókn hennar á jarðfræði og áhrifum efnislegra lögmála á umhverfið. Ljóðræn könnun Önnu Rúnar birtist í teikningum og skúlptúr sem leiðar til dýpri skilnings á mannhverfu sjónarhorni okkar á heiminn.
Í miðju sýningarinnar rekst áhorfandinn á skúlptúrinn Derailing (Afvísun), upprétta nál úr áttavita sem flöktir til ýmissa átta. Rauði liturinn á nálinni er sá sami og er í segulnál áttavitans. Reipið, sem til skiptis hringast upp og fellur niður, vísar í sæfaramenningu Íslendinga og sjávarútveg; rauður er ennfremur tákn um hættu.
Í innsetningunni er líka röð vatnslitamynda sem byggja á ýmsum útreiknuðum staðsetningum segulskauta jarðarinnar síðustu 16 milljón árin – sláandi afhjúpun á hreyfingum jarðsegulmagnsins í gegnum jarðsöguna. Í sumum þessara verka snýr Anna Rún kortunum til að breyta stöðu norðursins. Kort eru í eðli sínu sett upp miðað við það sjónarhorn sem kortagerðarmaðurinn leggur áherslu á. Við erum vön hefðbundnu vestrænu sjónarhorni þar sem norður er sýnt efst. Þetta orsakast mögulega af því að í upphafi var siglt eftir stjörnunum, sérstaklega Pólstjörnunni, og horft til himins. Hins vegar er staðsetning norðursins eintómur tilbúningur: jörðin flýtur í tómarúmi í geimnum og þar eru engar höfuðáttir.
Sýningin er styrkt af Myndlistarsjóði og Launasjóði myndlistarmanna.
mið
15. maí
14:00—15:00
Kraftar segulsviðsins
Sýningin Margpóla með verkum Önnu Rúnar Tryggvadóttur verður skoðuð þar sem segulsvið jarðarinnar og kraftar þess verða uppspretta listsköpunar þar sem frumlegar aðferðir koma við sögu.
Með Krakkaklúbbnum Krumma vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt.
Merki krakkaklúbbsins er fengið út barnabókinni Rauði hatturinn og krummi eftir Ásgerði Búadóttur myndlistarmann.
Ókeypis fyrir alla fjölskylduna.
lau
18. maí
14:00—16:00
Blátt lítið blóm eitt er
Verk Eggerts Péturssonar veita innblástur fyrir skemmtilega teiknismiðju. Listasmiðjan mun eiga sér stað inni í sýningarrými Safnahússins þar sem unnið verður með listaverkin okkar.
Með stofnun krakkaklúbbsins vill Listasafn Íslands veita börnum og fjölskyldum þeirra tækifæri til þess að njóta góðra stunda saman á safninu. Dagskráin er vönduð og öllum er velkomið að taka þátt.
Ókeypis fyrir alla fjölskylduna.
lau
25. maí
14:00—16:00
Sjónarafl - Vilt þú læra myndlæsi?
Listasafn Íslands og Listfræðafélagið hafa nú tekið höndum saman þar sem listfræðingar bjóða almenningi í Safnahúsið við Hverfisgötu að læra aðferðir myndlæsis. Gestir fá tækifæri til þess að skoða verk í safneign Listasafns Íslands og taka þátt í samræðum um verkin sem leiddar eru af listfræðingum.
Þátttakendur fá þannig lykla sem að auðvelda þeim að njóta hvaða myndlistar sem er. Komið og kynnist íslenskri myndlist, verið hjartanlega velkomin!
Óskað er eftir skráningu á þennan viðburð í gegn um netfangið mennt@listasafn.is
Aðgangseyrir á safnið gildir
sun
26. maí
14:00—15:00
Teiknað á safninu á fimmtudaginn langa
Teiknismiðja fyrir fullorðna í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg þar sem verkin á sýningum safnsins veita innblástur.
Þátttakendur eru hvattir til að koma með sín eigin teikniáhöld og skissubækur en einnig verður efni í boði á staðnum. Smiðjan hentar jafnt byrjendum sem og lengra komnum.
Leiðbeinandi: Anna Cynthia Leplar
Aðgangseyrir á safnið gildir.
Listasafn Íslands við Fríkirkjuveg er opið til kl. 22 á Fimmtudaginn langa
fim
30. maí
19:30—21:00
Járn, hör, kol og kalk
Leiðsögn sérfræðingsLeiðsögn sérfræðings
Á sýningunni verða ný verk eftir Þóru Sigurðardóttur. Verkin eru þrívíð og tvívíð ásamt vídeóverki og hafa ekki áður verið sýnd. Þau eru afrakstur athugana listamannsins sem ná allt aftur til ársins 1992. Uppsprettan er taktur daglegs lífs, hversdagsleg efni og rými. Yfirgefin hús. Minni efnis og eiginleikar þess, vegferð og umbreytingar. Járn, hör, kol og kalk. Lagskipting, skurðpunktar, tvívíð og þrívíð grind, regluverk. Dagatal. Vitund um þann möguleika að regla geti brostið, þyngdarpunkturinn glatast og óreiða tekið við.
Gæðastundir
Gæðastundir eru viðburðir sem ætlaðir eru fólki á besta aldri, 67+. Viðburðirnir eru samsettir af sérsniðnum leiðsögnum og spjalli við sérfræðinga safnsins um myndlist, yfirstandandi sýningar og starfsemi.
Viðburðirnir skapa tækifæri fyrir gesti til að nálgast myndlistina og menningararf þjóðarinnar á margvíslegan hátt. Ávallt er boðið upp á kaffi og meðlæti á gæðastundum í Listasafni Íslands. Bakkelsið er í boði Brauðs og Co sem styrkir verkefnið.
Aðgangseyrir á safnið gildir.
mið
12. júní
14:00—15:00